Útgefandi: Frækornið – Bókaforlag Aðventista • Reykjavík 2026
Lexíuhöfundur: Starfsfólk við Ellen G. White stofnunina • Þýðing: Einar Valgeir Arason • Prófarkalestur: Stefán Stefánsson og Vigdís Linda Jack
Í Aðventkirkjunni komum við saman til að lofa Guð, kynnast orði hans og njóta samverunnar. Allir eru hjartanlega velkomnir. At the Adventist Church we come together to praise God, explore His Word, and enjoy fellowship. Everyone is warmly welcome.
Hvíldardagurinn (laugardagur) er sérstakur dagur helgaður tilbeiðslu, hvíldar og samfélags. Verið velkomin í heimsókn. The Sabbath (Saturday) is a special day dedicated to worship, rest, and fellowship. Join us for any of our services.
Líflegt samtal um Biblíuna. Hér spyrjum við spurninga, skiptumst á skoðunum og veltum fyrir okkur hvernig textinn talar inn í líf okkar. Öllum velkomið að taka þátt eða bara hlusta. A lively conversation about the Bible. Here we ask questions, share perspectives, and explore how the text speaks into our lives. Everyone is welcome to participate or simply listen.
Uppbyggilegar sögur, söngur, handavinna og skemmtileg verkefni sniðin að yngri kynslóðinni. Hópar í boði fyrir bæði börn og unglinga. Inspiring stories, songs, crafts, and interactive lessons tailored for the younger generation. Classes available for both children and teenagers.
Guðsþjónusta með ljúfum söng, bæn og predikun úr orði Guðs. Eftir samkomuna er tilvalið að staldra við og spjalla í afslöppuðu andrúmslofti. A worship service with gentle music and singing, prayer, and preaching from God's Word. Afterwards, everyone is welcome to stay and chat in a relaxed atmosphere.
Lestu biblíulexíu dagsins á íslensku með ritningarversum, íhugunarefni og skýringum. Útgefandi: Frækornið – Bókaforlag Aðventista. Read today's Sabbath School Bible lesson in Icelandic with scripture verses and reflection questions.
Útgefandi: Frækornið – Bókaforlag Aðventista • Reykjavík 2026
Lexíuhöfundur: Starfsfólk við Ellen G. White stofnunina • Þýðing: Einar Valgeir Arason • Prófarkalestur: Stefán Stefánsson og Vigdís Linda Jack
Við erum hluti af alþjóðlegri fjölskyldu Kirkju sjöunda dags aðventista og miðlum lifandi trú, von og kærleika í Jesú Kristi. We are part of the global family of the Seventh-day Adventist Church, sharing living faith, hope, and love in Jesus Christ.
Söfnuðurinn á Selfossi leggur áherslu á að skapa hlýlegt, fjölskylduvænt umhverfi þar sem fólk getur kynnst kærleika Guðs og fundið stuðning í sínu daglega lífi. Við leggjum áherslu á biblíunám, heilbrigðan lífsstíl og virka samfélagsþjónustu. Our congregation in Selfoss focuses on creating a warm, family-friendly environment where individuals can experience God's love and find support for daily life. We emphasize Bible study, healthy living, and active community service.
Hvort sem þú ert að leita að andlegu heimili, hefur áhuga á að kynna þér Biblíuna betur, eða vilt einfaldlega eignast góða vini, þá ertu innilega velkomin(n) til okkar. Whether you are looking for a spiritual home, interested in learning more about the Bible, or simply want to make good friends, you are warmly welcome to join us.
Allir gestir eru velkomnir Every visitor is welcome
Trú byggð á Ritningunni Faith built on Scripture
Prestur Kirkju Sjöunda dags aðventista í Árnesi og á Akureyri Pastor of the Seventh-day Adventist Church in Árnes and Akureyri
Prestur & Safnaðarhirðir Pastor & Minister
„Markmið okkar er að feta í fótspor frelsara okkar, Jesú Krists, með því að þjóna fólki eins og hann þjónaði.“ “Our goal is to walk in the footsteps of our Savior, Jesus Christ, by serving people just as He served.”
Ég heiti Jóel Ævar Matchett og er prestur Kirkju Sjöunda dags aðventista í Árnesi og á Akureyri. My name is Jóel Ævar Matchett and I am the pastor of the Seventh-day Adventist Church in Árnes and Akureyri.
Ég ólst upp á Laugum í Reykjadal, þar sem ég bjó með föður mínum, Jóni Iain Peter Matchett, sem var enskukennari við Laugaskóla á árunum 2002–2012. Við sóttum alltaf aðventkirkjuna á Akureyri og þar eignaðist ég ævilanga vini. I grew up at Laugar in Reykjadalur, where I lived with my father, Jón Iain Peter Matchett, who was an English teacher at Laugaskóli from 2002 to 2012. We always attended the Adventist church in Akureyri, where I made lifelong friends.
Síðar flutti ég til Kópavogs, þar sem ég stundaði nám í listnámi og smíði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Mér hefur alltaf þótt gaman að skapa og vinna með höndunum og því fannst mér ég falla vel inn í hóp list- og smíðanema. Later, I moved to Kópavogur, where I studied art and carpentry at Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. I have always loved creating and working with my hands, and felt right at home among fellow art and carpentry students.
Eftir að hafa lokið námi og starfað um tíma fór ég í frekara nám til Danmerkur, þar sem ég lærði byggingafræði í Óðinsvé. Þar kynntist ég eiginkonu minni, sem bjó á sömu heimavist og ég og stundaði nám í læknisfræði. After completing my studies and working for a time, I went to Denmark for further education, where I studied architectural technology and construction management in Odense. There I met my wife, who lived in the same student residence and was studying medicine.
Á meðan ég stundaði nám í Danmörku ræddi ég oft við föður minn, sem sagði mér frá því að sífellt vantaði fleira fólk til að halda starfi aðventkirkjunnar gangandi. Ég fór þá að biðja til Guðs og spurði hann hvers vegna hann sendi ekki fleira fólk til starfa. Það var þá sem ég upplifði að Guð kallaði mig til prestsþjónustu. Ég tók þá ákvörðun að fara í prestnám. While studying in Denmark, I often spoke with my father, who told me that more workers were continually needed to keep the church's ministry going. I began praying to God, asking Him why He didn't send more people to serve. It was then that I felt God calling me to pastoral ministry. I made the decision to pursue pastoral studies.
Ég nýtti BA-gráðu mína í byggingafræði sem grunn að MA-námi mínu í guðfræði. Eftir að konan mín lauk læknanámi sínu fluttum við hjónin, ásamt tveimur dætrum okkar, aftur til Íslands í janúar 2026. Þar hef ég síðan starfað sem prestur á vegum stjórnar Kirkju Sjöunda dags aðventista á Íslandi. I used my Bachelor's degree in architectural technology as a foundation for my Master's degree in theology. After my wife completed her medical studies, our family—along with our two daughters—moved back to Iceland in January 2026. Since then, I have been serving as a pastor on behalf of the Seventh-day Adventist Church in Iceland.
Markmið okkar er að feta í fótspor frelsara okkar, Jesú Krists, með því að þjóna fólki eins og hann þjónaði. Við viljum mæta þörfum fólks og leitast við að það fái að sjá hver Jesús er, upplifa kærleika hans og njóta þess styrks, vonar og andlega stuðnings sem hann býður hverjum og einum. Our goal is to walk in the footsteps of our Savior, Jesus Christ, by serving people just as He served. We desire to meet people's needs and help them see who Jesus is, experience His love, and enjoy the strength, hope, and spiritual support He offers to everyone.
Við viljum einnig bjóða fólki að kynnast Biblíunni betur og sjá hvar við stöndum í tímans rás. We also warmly invite people to get to know the Bible better and see where we stand in the stream of time.